365 miðlar

Það er ódýrara að skemmta sér heima

J&L á marga skemmtilega viðskiptavini. Einn hefur þó yfirlýsta sérstöðu að þessy leyti:
Stöð 2 er skemmtilegri. Í dagskrárherferð haustsins lauma kunnugleg andlit sér inn í dagskrána í leit að enn meiri vinsældum og frægð. Herferðin hefur fengið frábærar viðtökur sem verða okkur hvatning til að gera eitthvað enn skemmtilegra næst.

Auglýsingarnar eru afrakstur ánægjulegs samstarfs við fólkið á 365 - jafnt þeirra sem eru fyrir framan myndavélarnar og þeirra sem eru fyrir aftan þær. Vökunætur í hreyfimyndadeild og myndvinnslu J&L skila sér í vönduðum auglýsingum fyrir sjónvarp og prentmiðla. Eins og Pétur Jóhann syngur svo listilega: Enginn skal sofa! Ekki heldur þú, prinsessa, í þínum kalda klefa þar sem þú horfir á stjörnurnar.

Prentauglýsingar og veggspjöld

Leikstjórn og framleiðsla: J&L
Kvikmyndataka: Ágúst Jakobsson
Ljósmyndir: Baldur Kristjánsson og Gunnar Svanberg