Borgun

Auðveldar viðskipti

Þegar venjulegt fólk borgar pulsu og kók með korti kallar fólkið hjá Borgun það „færsluhirðingu“. Þau eru fólkið á bakvið posann. Án þeirra værum við sliguð af klinki. Og Borgun er eina færsluhirðingarfyrirtækið sem getur þjónustað öll kort, ekki bara Visa og Mastercard heldur líka JCB og Diner's Club og kort sem næstum enginn notar.

Þótt um svokallaðar B2B auglýsingar (Business to business) sé að ræða var ákveðið að staðsetja Borgun í huga almennings sem fyrirtækið sem tekur við öllum greiðslukortum - og gera það með glæsibrag. Leiðtogar á markaði eiga að vera óhræddir við að láta finna fyrir sér. Sönn ást er að taka við öllum kortum!

Tökur fóru að mestu fram í Odda en stóra dansatriðið var skotið á veitingastaðnum Broadway. Þar kom skemmtilega á óvart að leikarinn Sveinn Þórir Geirsson er án efa besti macarena-dansari landsins og líklega á öllu evrópska efnahagssvæðinu. Þótt sporin vefðust nokkuð fyrir hinum aðalleikaranum, Árna Vilhjálmssyni, bætti hann þau snögglega upp með seiðandi mjaðmahreyfingum. Framleiðsla, leikstjórn og tæknibrellur voru í höndum J&L og móttökustjórinn okkar, Kristín Ásta, leysti snúið casting verkefni með stæl.