Okkur langaði til að gera "eitthvað öðruvísi" í tengslum við skólaherferð EJS. Við ákváðum því að búa til leik sem við kölluðum "Frímínútur með EJS". Við fengum lánaða skólastofu í Austurbæjarskóla og tókum rúmlega 1000 myndir sem við unnum úr. Þá tók við mikil og skemmtileg eftirvinnsla á myndum og loks forritun á leiknum. Tilgangurinn er síðan að nota vörur frá EJS til að leysa leikinn og EJS gefur heppnum þátttakendum vinning.
Viðtökurnar við þessum ofurlítið flókna leik hafa verið frábærar. Nokkur þúsund manns hafa leyst leikinn og fjölmargir hafa lýst ánægju sinni á Facebook síðu EJS.
Hér geturðu skoðað afraksturinn.