Tryggingamiðstöðin

Ef þú ert tryggður þá færðu það bætt

TM leggur áherslu á raunveruleg þjónustugæði, sanngjarna úrlausn tjóna og skjótar lausnir þegar viðskiptavinir lenda í áföllum. TM lætur líka viðskiptavini njóta góðs af langri viðskiptasögu með sífellt betri kjörum. Þannig verður gott samband betra með tímanum.

Niðurstaða okkar varð því að segja sögu af vinunum Baldvin og Ingólfi. Vinskapur þeirra hófst með formlegu handabandi en hefur þróast með tímanum í traust og góðar ráðleggingar. Auk þess sem þeir bæði vinna og skemmta sér saman, og geta eiginlega ekki án hvor annars verið. Svo eru konurnar þeirra reyndar tvíburar (hey, þetta er auglýsing, ekki sænsk heimildarmynd).

Tökur fóru að mestu fram í Odda en stóra dansatriðið var skotið á veitingastaðnum Broadway. Þar kom skemmtilega á óvart að leikarinn Sveinn Þórir Geirsson er án efa besti macarena-dansari landsins og líklega á öllu evrópska efnahagssvæðinu. Þótt sporin vefðust nokkuð fyrir hinum aðalleikaranum, Árna Vilhjálmssyni, bætti hann þau snögglega upp með seiðandi mjaðmahreyfingum. Framleiðsla, leikstjórn og tæknibrellur voru í höndum J&L og móttökustjórinn okkar, Kristín Ásta, leysti snúið casting verkefni með stæl.