Sinfóníuhljómsveit Íslands
Starfsárið 2009/10
Fágaðasta og besta hljómsveit landsins þarf kynningarefni sem endurspeglar kraft hennar, fagmennsku og listrænan metnað. Nýtt útlit kynningarefnis sveitarinnar myndgerir hughrif stórrar tónlistar mikilla listamanna. Ásgeir, Áshildur, Katie, Margrét og Steve, ásamt hinum frábæru stjórnendum sveitarinnar, Rumon Gamba og Daníel Bjarnasyni, létu sig hafa það að spila og stýra aftur og aftur í myrkrinu með perur á hljóðfærum og vasaljós sem tónsprota. Útkoman er glæsilegar myndir af okkar fremstu spilurum á fullri ferð
Markmiðið er þó aldrei eingöngu að gera fallega hluti, ekki einu sinni fyrir Sinfóníuhljómsveitina. Við vildum fá fólk til að langa á tónleika, vekja tilhlökkun og gera áskriftarraðir að spennandi vöru, ekki síst fyrir yngra áhugafólk um tónlist. Árangurinn í þetta sinn var nærri þriðjungs aukning í sölu áskrifta milli ára og líklega sölumet í sögu hljómsveitarinnar.
Myndvinnsla: J&L
Ljósmyndari: Ari Magg
Prentauglýsingar og veggspjöld