Það er alltaf líf og fjör á opna deginum á Ásbrú. Enda er nóg um að vera og samhliða kynningum á námsleiðum Keilis, opna fyrirtæki á svæðinu starfsemi sína og boðið er upp á spriklandi skemmtidagskrá. Í fyrra mættu 15 þúsund manns og í ár fjölgaði gestum enn frekar - 20 þúsund manns, takk fyrir. Hversu margir verða þeir á næsta ári?