Eymundsson
Skólabókadæmi
Skólabækur eru ekki gefins og það getur reynt á budduna að klára innkaupalistann fyrir veturinn. Með kaupum á notuðum bókum á skiptibókamarkaðinum er hins vegar hægt að spara sér óþarfa kostnað og með smá fyrirhyggjusemi er jafnvel hægt að spara stórar upphæðir þegar líður á skólagönguna. Fjárhæðir sem hægt er að nota í fjölmargt annað skemmtilegt, ef maður bara hefur ímyndunaraflið í lagi.