Aðferðafræði

Það er okkar trú að fólk sé ekki fífl

Auglýsingar eiga þess vegna ekki að gera lítið úr greind fólks og tala niður til þeirra
með grunnum og heimskulegum skilaboðum. Athygli er ekki það sama og áhugi.

Við leggjum mikla áherslu á að skilja sérstöðu og ábata þeirrar vöru sem við erum
að selja. Oft er það ekki eins augljóst og það hljómar.

Við erum sannfærð um að aðeins þannig getum við kveikt raunverulegan
áhuga á vörunni og skapað ný viðskipti.

Jónsson & Le’macks vinnur eftir einföldu ferli:

  1. Skilgreining markaðsstrategíu og markmið.
  2. Skilgreining skilaboða sem geta náð þeim markmiðum.
  3. Skilaboðunum breytt í góðar auglýsingar.
  4. Árangursmat.

Við leggjum áherslu á vönduð vinnubrögð og náið samstarf í þessu ferli með
viðskiptavinum okkar. Það er okkar reynsla að þetta sé grunnurinn að traustu samstarfi fyrirtækja við auglýsingastofu.